Norrænn fundur félaga sjúkraþjálfara
Fulltrúar frá norrænum félögum sjúkraþjálfara héldu árlegan fund sinn í Kaupmannahöfn í vikunni
Félag sjúkraþjálfara átti fjóra fulltrúa á fundinum að þessu sinni
Árlegur fundur norrænna félaga sjúkraþjálfara var haldinn í Kaupmannahöfn fyrr í vikunni og átti Félag sjúkraþjálfara fjóra fulltrúa á fundinum að þessu sinni.
Fulltrúar frá hverju félagi fyrir sig héldu kynningu á starfsemi og helstu áskorunum og verkefnum sem eru í brennidepli í hverju landi fyrir sig. Líflegar umræður sköpuðust og grundvöllur lagður að frekara samstarfi félaganna á afmörkuðum sviðum.
Einnig var heildræn endurhæfing einstaklinga sem glíma við afleiðingar höfuðhögga rædd ásamt fyrirkomulagi starfsendurhæfingar á Norðurlöndunum.
Ljóst er að mikil samstaða ríkir meðal félaga sjúkraþjálfara á Norðurlöndunum og mörg tækifæri til að efla samstarfið í þágu félagsfólks.
Hér má nálgast nokkrar myndir af fundinum og samveru fulltrúa félaganna